14.1.2011
Sżndarveruleiki ķ sušu
Į þessu ári mun málm- og véltæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs stökkva langt inní framtíðina og hefja suðukennslu í sýndarveruleika.
Búnaðurinn verður bæði notaður til kennslu byrjenda og þeirra sem þurfa þjálfun til þess að bæta sig og sitt handverk. Segja má að þjálfunin byggi á fimm þáttum þ.e. færsluhraða, nálægð suðubyssunnar, halla suðubyssunnar, einkunnargjöf og hermun með mismunandi stillingum eins og breytingum á straum.
Žá er einnig um það að ræða að ekki er hægt að komast áfram í þjálfuninni fyrr en ákveðni leikni hefur verið náð. T.d. 85% leikni í færsluhraða, þá er hægt að halda áfram yfir í nálægð suðubyssunnar og svo koll af kolli. Gefin eru stig fyrir hverja umferð og afrekaskrá allra nemenda. Þannig geta nemendur og kennarar keppt í suðu sín á milli.
Hægt er síðan að skoða í upptöku hvað gert var rangt og lagfæra það í næstu umferð.
Aðgerðum er stjórnað í gegnum 22“ snerti skjá, neminn sér umhverfið í gegnum sérstök þrívíddar gleraugu sem eru í suðuhjálminum.
Búnaðurinn sem MVS IÐUNNAR fræðslusetur hefur ákveðið að nota í byrjun er frá FRONIUS í Austurríki. En FRONIUS er eitt af leiðandi fyrirtækjunum í suðumálum á heimsvísu.
Sýndarveruleikinn gefur ýmsa möguleika í kennslunni sem ekki voru áður. Það er t.d. hægt að fara með þjálfunina inní venjulega kennslustofu. Þá gefur búnaðurinn einnig möguleika á kynningu í suðu fyrir t.d. grunnskóla. Sparnaður við þjálfun suðumanns lækkar um 25%. Mengun snar minnkar þar sem engin ljósbogi og / eða gös myndast.

Leit
Mynd