17.11.2010
Stofnun Skills Ísland
Mánudaginn 15. nóvember voru samtökin Skills Ísland stofnuð með formlegum hætti. Mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir setti stofnfundinn við hátíðlega athöfn í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Stofnaðilar að samtökunum eru Bílgreinasambandið, FBM, Iðanðarmannafélag Reykjavíkur, Iðnmennt, MATVÍS, Meistarasamband byggingarmanna, Rafiðnaðarsambandið, SAF, Samiðn, Samtök iðnaðarins, SART og VM. Stjórn var kosin til næstu tveggja ára. Stjórn skipa Björn Ágúst Sigurjónsson formaður, Ólafur Jónsson og Þór Pálsson. Varamenn eru Ingi Bogi Bogason og Georg Páll Skúlason.
30.9.2010
Akureyri
8.9.2010
Námsvísir haustannar er kominn út
Fjöldi spennandi námskeiða er í boði hjá IÐUNNI á haustönninni. Við hvetjum alla til að skoða vel úrvalið, jafnt fagtengdu námskeiðin sem og stjórnunar- og tölvunámskeiðin. Námsvísinum er dreift til allra félagsmanna okkar sem eiga von á honum í dag eða næstu daga. Einnig er hægt að nálgast námsvísinn hér.
Við hlökkum til að starfa með ykkur í vetur og hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur í síma 590-6400 ef frekari upplýsinga er þörf.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk IÐUNNAR fæðsluseturs
4.8.2010
Námskeiđ IĐUNNAR á haustönn 2010
16.7.2010
Námskeiđ í pinnasuđu
Námskeið í pinnasuðu verður haldið dagana 24. til 26. ágúst nk. Góður undirbúningur fyrir sveinspróf í vélvirkjun.
21.5.2010
Grunndeildir í málm- og véltćkni viđ 11 framhaldsskóla
21.1.2010
Stefnumótun IĐUNNAR í fullum gangi
Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)
7.1.2010
Námsvísir vorannar 2010 er kominn út
Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.
Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.
Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.
Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
Leit
Mynd









