Beint á leiðarkerfi vefsins

14.11.2008

Auglýsing um sveinspróf

Auglýsing um sveinspróf var birt í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sunnudaginn 26. október.

14.11.2008

Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum

Fundur um stöðu iðnnemaFjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.

 

29.10.2008

IÐAN fræðslusetur og Starfsafl fræðslusjóður í samstarf

IÐAN og StarfsaflsUndirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).

4.9.2008

Nýr námsvísir kemur út í dag!

Námsvísir IÐUNNAR kemur út í dag. Að vanda býður IÐAN upp á fjölbreytt námskeið fyrir aðildarfélaga. Meðal nýjunga má nefna námskeið í stjórnun og rekstri. T.d. má nefna námskeið um skuldastýringu og gengisvarnir, birgðastjórnun í iðnaði, framleiðslustjórnun iðnfyrirtækja, gæðastjórnun og móttöku viðskiptavina.

Fyrstu stjórnunar- og rekstrarnámskeið hefjast 15. september en þá hefst námskeið í framleiðslustjórnun í iðnaði.

11.5.2008

Aðalfundur IÐUNNAR fræðslusetur

Aðalfundur var haldinn þriðjudaginn 29. apríl sl. á Grand Hótel. Í stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs árið 2008 eru:

Aðalmenn:   Varamenn:
 Bjarni Thoroddsen SI  Atli Vilhjálmsson BGS
 Finnbjörn Hermannsson Samiðn  Erna Hauksdóttir SAF
 Georg Páll Skúlason FBM  Heimir Kristinsson Samiðn
 Guðmundir I. Skúlason BGS  Haraldur Dean Nelson SI
 Hilmar Harðarson FIT  Hákon Hákonarson Samiðn
 Magnús Magnússon VM  Ingi Bogi Bogason SI
 Níels Olgeirsson MATVÍS  Ingólfur Sverrisson SI
 Ragnheiður Héðinsdóttir SI  Stefán Ólafsson FBM
Jón Steindór Valdimarsson SI  Sveinn Ingason FIT
 Þorsteinn Víglundsson SI  Þorsteinn Gunnarsson MATVÍS

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

18.4.2008

Íslandsmót iðngreina sett í dag!

Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti  Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.

Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.

17.4.2008

Verk og vit 2008

IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.

10.4.2008

Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir

Haldinn verður fræðslufundur um gerð prófa og námsmat fimmtudaginn 8. maí kl. 15.00-17.30 að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík. Aðgangur er ókeypis en hvetjum fólk til að skrá sig. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí  í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)

 

7.4.2008

Úthlutun úr AKK, styrktar- og menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga

Á aðalfundi VM fékk málm- og véltæknisvið IÐUNNAR úthlutað 1,8 milljón króna til þess að smíða tvö kennslutæki í kæli- og frystivélatækni.

Samkvæmt reglugerð evrópusambandsins og væntanlegra undirreglugerða verða gerðar strangar kröfur til þeirra sem vinna við kæli- og frystitæki. Þessi nýi tækjabúnaður verður m.a. notaður til þess að sinna þessum kröfum.

Úthlutun þessi kemur að góðum notum og er til þess fallin að  styrkja málm- og véltæknisvið IÐUNNAR á sviði kæli- og frystivélavirkjunar verulega. 

 


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd