9.11.2007
IŠAN og Frostmark gera samning um kennslubśnaš
IÐAN fræðslusetur og Frostmark hafa gert með sér samning um að Frostmark smíði fyrir IÐUNA tvö kennslutæki í kælitækni. Annað verður bæði með kæli og frysti meðan hitt verður eingöngu með frysti. Á þessi tæki verður kennt til vottunar í kælitækni. Meðal annars verða tuttugu og átta mismunandi bilanir á kerfunum bæði í stýri- og kælikerfinu. Þá verður annað kerfið sérstaklega ætlað til þjálfunar á af- og átöppun kælimiðils. Einnig verður kerfið ætlað til þjálfunar á af- og átöppun smurolíu. Þetta er aðeins fyrsta skrefið í að málm- og véltæknisvið IÐUNNAR taki að sér vottun íslenskra kælifyrirtækja og manna.
30.10.2007
Blikksmišir framtķšar
Félag blikksmiðjueigenda og Ísloft ehf buðu nemendum í málmiðnabraut Borgarholtsskóla í heimsókn. Strákarnir fóru vítt og breitt um Ísloft og kynntu sér starfsemina. Verulegur hluti hennar snýst um framleiðslu og uppsetningu loftræsikerfa. Smíðavinnan felst m.a. í formun plötuefnis í stórar einingar, stokka og aðra íhluti í tölvustýrðum vélum.
30.10.2007
Fimm sušunįmskeišum lokiš ķ samvinnu viš Fronius ķ Austurrķki
Lokið er fimm mismunandi suðunámskeiðum námskeiðum hjá Málm- og véltæknisviði IÐUNNAR. Námskeiðin voru í Ál suðu, MIG- brasing og CMT. Yfir fjörutíu manns sóttu námskeiðin.
12.10.2007
Mįlm- og véltęknisviš vķgir glęsilega ašstöšu til sušužjįlfunar
Málm-og véltæknisvið IÐUNNAR vígði glæsilega aðstöðu til suðuþjálfunar á Gylfaflöt 19 í dag. Gústav Adolf Hjaltason málmtæknifræðingur sýndi gestum nýjustu tækni við málmsuðu og leyfði viðstöddum að grípa í græjurnar. Aðstaðan gerir kleift að kenna nemendum TIG suðu, koparbras og silfurkveikingu, MIG/MAG suðu, pinnasuðu og logsuðu. Næsta námskeið verður haldið í álsuðu 16. október. Skráning hér.
10.10.2007
Sérfręšingar frį LASTEK kenna į sušunįmskeiši
Sérfræðingar frá Lastek kenna á sérhæfðu suðunámskeiði. Farið var í mjög sérhæfðar aðferðir varðandi bras og lóðningar. Þá var einnig farið í aðferðir varðandi suðu í vatni og sérstakar suðuaðferðir varðandi viðgerðir á steypujárni.
9.10.2007
Nįmskeiš hefjast viš Hįskólann ķ Reykjavķk
Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.
9.10.2007
Išntölvunįmskeiš
IÐAN fræðslusetur heldur iðntölvunámskeið PLC.
Frábært iðntölvunámskeið er í gangi hjá málm- og véltæknisviði Iðunnar. Mikil ásókn hefur verið í iðntölvunámskeið Iðunnar. Annað námskeiðið á haustönn er í gangi núna og það þriðja verður haldið á Reyðarfirði í næstu viku. Líkur eru á að það fjórða verði sett upp nú á haustönn. Þeir sem vilja taka þátt verða að skrá sig sem fyrst.
Skráning á Idan.is eða kristjankr@idan.is og í síma: 5906400
8.10.2007
Sveinspróf ķ vélvirkjun
Dagana 5. - 7. október voru haldin sveinspróf í vélvirkjun.
Sveinsprófin voru haldin á Akureyri og í Reykjavík. Alls voru 28 sveinsprófstakar.
Mynd úr sveinsprófinu
5.10.2007
AutoCAD į fullu
AutoCAD-námskeið IÐUNNAR hafa verið vel sótt í haust. Tveimur Autocad- námskeiðum er lokið auk Inventor-námskeiðs.
3.10.2007
Išntölvustżringar hjį Alcoa
Málm- og véltæknisvið hélt sitt fyrsta námskeið hjá Alcoa Fjarðaáli í september s.l. Kennari er Kristján Haukur Flosason sem vinnur nú ásamt Kristjáni Kristjánssyni MVS að þróun námskeiðs í iðntölvustýringum.
18.9.2007
Mįlmsuša - Grunnur
15.3.2007
Hvaš getum viš gert fyrir vélstjóra?
Vélstjórar sækja endurmenntun til IÐUNNAR
VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna gerði samkomulag við IÐUNA
fræðslusetur um endurmenntun allra félagsmanna. Samkomulagið nær til allar námskeiða málm- og véltæknisviðs.
Leit
Mynd









